|

Smellið
á myndina til að sjá hana stóra
(Myndin
er úr bókinni Ættartala úr Suðursveit, með góðfúslegu
leyfi höfundar)
|
Vigfús Sigurðsson fæddist þann 16. nóvember 1880. Sigurður
faðir Vigfúsar og Sigurður faðir Ara á Borg voru hálfbræður,
sammæðra.
Vigfús var trúlofaður
Sigríði Gísladóttur áður en hún giftist Ara á Borg. Þau voru þá
bæði vinnuhjú í Hoffelli. Vigfús drukknaði í Hornafjarðarósi
þegar Sigríður var gengin fjóra mánuði á leið með barn
þeirra.
Slysinu og aðdraganda þess er lýst svo í
endurminningum Þorleifs Jónssonar í Hólum:
Þetta vor, 1911, rak allmikinn hafís hér suður
fyrir Hornafjörð, fyllti ósinn og rak inn um fjörð. Þetta var
síðustu dagana í apríl.
Strandferðaskipið Perwie var þá á suðurleið, og tókst henni
að fika sig um vakir og sund inn á ósinn og lagðist þar í lægi
5. maí. Hinn sama dag flýði franskt spítalaskip inn á ós undan
ísnum.
Næstu daga var ísinn svo þéttur, að ekki voru tiltök að komast
út. Einhvern daginn lagði spítalaskipið til, en festist í ís og
rak upp á eyri. Bátaferðir voru tíðar milli kaupstaðarins og
skipanna, einkum í Perwie að flytja fólk, farangur og vörur milli,
bæði árabátar og einnig mótorbátar. Hinn 10. maí vildi það
slys til, að Vigfús Sigurðsson, vinnupiltur frá Hoffelli,
drukknaði í firðinum. Var hann á mótorbát eða uppskipunarbát,
og strandaði báturinn eða festist á grynningu. Setti Vigfús sig
út að kanna, hvar dýpi væri, og óð sig í kaf, áður en nokkur
vissi; hefur ekki varað sig á, að örskammt frá bátnum
snardýpkaði. Fannst hann brátt, en var þá liðinn, þótt brátt
næðist í lækni til að gera lífgunartilraunir.
Eftir dauðsfall Vigfúsar fór Sigríður heim til foreldra sinna að Viðborði. Barn
hennar og Vigfúsar fæddist 9. október 1911, það var drengur og var hann látinn
heita Vigfús eftir föður sínum.
Síðar kynntist Sigríður Ara á Borg, þegar Vigfús Vigfússon var enn aðeins smábarn. Ari gekk
honum í föðurstað og Vigfús leit alltaf á Ara sem pabba sinn, enda þekkti
hann aldrei til föður síns. Vigfús ólst svo upp með hálfsystkinum sínum,
börnum Ara og Sigríðar.
|