| Ættfræði
- þjóðaríþrótt Íslendinga?
Íslendingar hafa löngum verið
mikið fyrir ættfræðigrúsk. Hver man ekki eftir að hafa verið
spurður að því hverra manna hann sé?
Á undanförnum árum hefur
áhuginn á ættfræði farið enn meira vaxandi, og sérstaklega meðal
yngra fólks. Þetta má meðal annars sjá á því að ættarmótum
virðist hafa fjölgað umtalsvert á tiltölulega stuttum tíma.
Ástæðan fyrir þessari
skyndilegu aukningu í frændrækni Íslendinga kann að vera aukin
umræða um erfðavísindi. Þar eiga ekki síst þátt fyrirtæki á borð við Íslenska
Erfðagreiningu og Urði, Verðandi, Skuld.
Hér eru nokkrir tenglar á vefi
um ættfræði. Listinn er síður en svo tæmandi, en hægt er að
nálgast fleiri tengla á síðum Ættfræðifélagsins og Íslenska
Ættfræðivefnum. |