|
Hólmfríður
|
Tölvupúki, föndrari o.fl.
Eiginmaður: Gunnar Freyr
Barn: Márus Björgvin
|
|
|
|
|
|
Ba(r)nvænt?
Mér finnst óhugnarlegt hvað orðin banvænt og barnvænt eru lík.
Þetta er bara spurning um eina litla, en mögulega lífshættulega, innsláttarvillu...
|
|
Esjan klifin
Ótrúlega dugleg, ég. Lovísa systir dró mig í mína fyrstu göngu á Esjuna í gærkvöld, og stóð ferðin yfir frá níu til ellefu, svona sirka. Komumst nálægt fjórða punkti, áður en við ákváðum að halda niður aftur, þar sem við þurftum báðar að vakna snemma í morgun.
Ég hef eiginlega hálfskammast mín að hafa aldrei lagt í Esjuna, og það orðin rúmlega tvítug ( ;0) ), en mér leið betur þegar ég komst að því að *fyrra* skiptið Lovísu var bara í fyrra - og þar sem hún er 14 árum eldri en ég þá sló ég henni við...
Við stefnum á að ná fjórða punkti næst :0)
|
|
Bleik
Til hamingju með daginn stelpur!
Mér finnst bleiki dagurinn sniðugur. Og mogginn góður að skipta um lit í tilefni dagsins.
Ég er Bleik í dag. Næstum óvart samt... Fór í bleikan bol, með bleikan gloss, bleika tösku og bleika skó (með sama mynstri og peysan). Held ég sleppi samt við að líta út eins og bleikur sykurpúði...
Það mætti halda að maður væri gallharður feministi... ;0)
|
|
Gunni á afmæli!
Til hamingju með afmælið ástin mín Uppfært: Bæti við Gretti dagsins - þeir deila semsagt afmælisdögum :0)
|
|
Eftir aðgerðina
Ég held það megi bara segja að aðgerðin hafi gengið prýðisvel. Ég var komin með sæmilega sjón daginn eftir, þótt gufubaðs-tilfinningin hafi reyndar verið sterk þannig og eimur af henni fylgt mér fram eftir helginni.
Strax á föstudeginum, þegar ég fór í augnskoðun, var sjónin komin úr -6,25 & -6,75 í -0,5 & -0,25, og í gær var hún ca -0,25 á báðum. Sem er auðvitað bara *piff* :0) og krefst í mestalagi *gáfumannagleraugna* eða *menningargleraugna* sem sett eru upp ef maður er að reyna að rýna í gráan texta á fyrirlestrartjaldi í eða sjá nákvæmlega svipbrigðin á leikurunum af stúkusvölunum ...
Ég er hinsvegar búin að vera ansi þreytt mestalla vikuna - náði að vinna í 3 tíma á mánudeginum, en þá líka fór ég bara heim og steinrotaðist í 3 tíma... Eftir það er ég búin að auka aðeins við mig vinnutímann á hverjum degi, og náði nærri fullum degi í gær. Þar held ég reyndar að spili þónokkuð inní að ég er auðvitað að rýna í tölvuskjá vinnudaginn út og inn, sem er mögulega erfiðara fyrir augun en margt annað.
Hvað verki eða óþægindi varðar, þá finnur maður ekkert til í aðgerðinni nema akkúrat meðan augnsperrurnar halda manni kjurrum - og þá bara í beinunum sem þær þrýstast að. Augað er algjörlega tilfinningasnautt. Síðustu vikuna hef ég svo þurft að vera dugleg að setja augndropa í augun ef ég er þurr, og svo fæ ég svona þreytuverki í vöðvana í kring - sem er líklega eðlilegt og í raun bara harðsperrur, því allt í einu er ég að nota augn-hreyfi-vöðva, sem ég hef varla spennt í 20 ár!
knús, þið Ykkar sjáandi H
|
|
Krípí
Finnst engum öðrum en mér skokkararnir, sem teygja endalaust á í glerveggjum strætóskýla borgarinnar í boði Glitnis, vera soldið krípí?
|
|
|
|
Daglegir vefir
Gamalt röfl
Mogginn
fyrir þá sem vilja fylgjast með
Femin
fyrir konur og þá sem vilja gera vel við þær
Baggalútur
svo maður eigi auðveldara með að brosa framan í heiminn
|
|